Klukkan

Auglýsing

Alltaf gaman hérna!!!

Photobucket - Video and Image Hosting

Innskráningar kubbur

Könnun

Ferðu út í sumar?

Nýjast á HumorPix

Funny Images, iWalk Funny Images, Behind the Mask Funny Images, Reality Check Funny Images, Young Fidel Castro totally looks like Liam Neeson Funny Images, If you didn’t realize how large whales were already… Funny Images, A sink full of cat…

Leikur dagsins

Get ekki eytt færslunni á undan út....

20. september 2007 klukkan 00:56


En jújú, dóran hefur ekki bloggað í fleiri fleiri mánuði - hef alfarið snúið mér að MySpace - þykir það einfaldlega skemmtilegra - ég hef aldrei verið góður penni...

Frííí

En í hú !
Ég er núna búin að vera í sumarfríi síðan um mánaðarmótin og ég er að fá morðhótanir úr öllum áttum - það vilja bara AAAAAALLIR vera í fffrrrríííi :D ekki það að ég mæli með því að vera í fríi í SEPTEMBER - hvað um það ...
ég er að fara til Ísó á mánudaginn - vei vei !!! Hitti alla og passa og svona, nóg að gera :D En ég er ekki alveg að skilja þetta nöldur um þessar myndir... hvaða myndir eiga þetta að vera ????


p.s. Rebbi.. kötturinn sem ég fékk mér... hann er ekki Rebbi - hann er RebbA WTF

09. júlí 2007 klukkan 21:44

<center>
<a href="http://www.techno.is"><img src="
http://techno.is/myspace/chrislake-poster.jpg"
alt="Ekki missa af Chris Lake 7. sept" /></a>
<br><br>
<a href="
http://techno.hysingar.net/syrpur/innlennt/ChrisLake-MiniMix-V0.mp3"><font
face="arial" size="3" color="#ff0000"><b>Hér er hægt
að hlusta á dj mix með Chris Lake sem inniheldur
einungis lög eftir hann sjálfan.</b></font></a>
<br><br>
Chris Lake er þekktur á heimsvísu fyrir að vera einn
yngsti og hæfileikaríkasti framleiðandi (producer) og
plötusnúður í dans senunni. Frumlegheit hans eru engu
lík að mati Sasha, Kleinenberg og Pete Tong.

Ég heiti Dóra & ég er fíkill

29. maí 2007 klukkan 13:54

Já, það er komið á hreint - ég er fíkill - ég er fíkill í allt sem tengist tölvum! Alla helv. hvítasunnuhelgina sat ég heima að nördast! Þetta er nottlega ekki í lagi sko, mér leið alveg illa ef ég var ekki búin að tjékka á síðunum mínum í ca hálftíma... Kannist þið við þetta... svo á laugardaginn áhvað ég... "Engin tölva í ALLAVEGA 5 tíma" það gekk brösulega í klukkutíma á meðan ég las Bridget Jones´s Diary á svölunum í sólbaði, áður en ég vissi af var tölvukvikindið komið við hliðina á mér að spila ljúfa tóna af MySpace...
Ég efa það ekki að ef ég myndi fá æði fyrir Warcraft að þá er bara einfaldlega ekki aftur snúið - ég verð eins og strákurinn þarna sem gjööörsamlega snappaði á tölvuna sína af því að hann var drepinn í e-m leik.. æi þið vitið hvað ég á við...


Ásamt nördasörfi um helgina kíkti ég á Plugg´d & Exos á Nasa á sunnudaginn- það var gjöööööðveikt! ég er með svo miklar harðsperrur að ég á erfitt með að labba upp/niður stiga, ferlegt alveg...

Ekkert meira í bili

Með von um góðann bata
*Dóra

Kominn tími á smááá blogg

17. maí 2007 klukkan 16:18
Ég áhvað að láta eftir Döggu svona einusinni..
Mikið búið að gerast í lífi Dórunnar, ég er flutt með pabba í Kópavog, kötturinn er týndur og allt á niðurleið
DJÓK
Vonandi finn ég TarZan sem fyrst, ég hef heyrt að hann sé í einvherju gengi þarna hjá Kársnesbraut, hann þarf víst að sýna sig fyrir hinum strákunum hvað hann getur verið lengi úti Ullandi
Nýja íbúðin er ÆÐI! Bara stofan er jafn stór og litli bílskúrinn sem ég var í í meira en ár! Þannig að ég verð alveg móð við að fara á klósettið, ég fer í sturtu 2-3svar á dag af því að það er svo gaman ! Hægt að ANDA inni í henni.. hehe.. ææææææði pæði !
Allavegana.. þarf að vera aðeins duglegri að tjá mig hérna.. ég er bara búin að detta svo inn í MySpace heiminn að það er ekki fyndið, talandi um það, könnunin fór svo
MySpace eða Bloggar
35 - MySpace
15 - Bloggar


Það er greinilegt að MySpace hefur tekið yfir á klakanum !

Allavegana.. hef ekkert að seeeeeeegja, var orðin voða þreytt á að sjá smettið á Hávarði í hvert skipti sem ég kíki hingað

Doran - OUT !

Óvissuferð

02. apríl 2007 klukkan 22:48


Núná á laugardaginn fór ég í óvissuferð með vinnuni og ég hef nú bara sjaldan skemmt mér eins vel á ÆVINNI ! Ég gat ss valið um 3 hópa -Tónlist & Frumleiki, Matur & Menning eða Útivist & Leikir - mín skellti sér á tónlist og frumleika og ég hefði nú ekki getað valið betri hóp ! Við vorum samt fámennasti hópurinn.. en skemmtilegasti án efa! Við byrjuðum á því að mæta á svið X-Factor í Smáralind stundvíslega klukkan 2 og þar beið okkar hlaðborð af kræsingum namm namm ! Svo var ferðinni heitið í Kramhúsið og við lærðum þar afrískann söng og dans - vááá hvað þetta var gaaaaaaaaman ! ! ! En eftir 2 eða 3 tíma í Kramhúsinu og 2 lítrum af svita seinna var ferðinni svo heitið alla leið upp í Ölfus í reiðhöllina þar. Þar var trallað langt fram á nótt með ÖLLU tilheyrandi !
 ég skellti myndum inn í albúm svo ég leyfi þeim bara að tala fyrir sig:)
en ég vill samt taka fram að við Halla vorum byrjaðar að drekka klukkan hálf 2 svo við vorum veeeeeeeel kembdar ALLAN daginn eins og flestir í ferðinniSvalur

Brandari í tilefni fimmtudagsins...

29. mars 2007 klukkan 14:11
Kæri eiginmaður.

Ég skrifa þér þetta bréf því ég hef ákveðið að fara frá þér.

Ég hef verið þér góð eiginkona í sjö ár án þess að það hafi skilið nokkuð eftir.

Þessar síðustu tvær vikur hafa verið algjört helvíti.

Það sem fyllti mælinn var þegar yfirmaðurinn þinn hringdi í dag til að segja mér að þú

hefðir sagt upp vinnunni þinni !!!!

Hvað varstu eiginlega að hugsa ??????

Í alvörunni, bara í síðustu viku komstu heim úr vinnu og tókst ekki einu sinni eftir því að ég hafði

farið í klippingu . Ég eldaði meira að segja uppáhalds matinn þinn og til að reyna að

vekja athygli þína klæddist ég glænýjum sexý náttkjól um kvöldið !!!!

Þú hinsvegar komst heim,gleyptir í þig hluta af matnum á innan við mínútu, fórst svo upp í rúm þar sem þú gláptir á fótboltaleikinn í sjónvarpinu eins og þú gerir ALLTAF ....áður en þú steinsofnaðir!!

Þú ert alveg hættur að segja að þú elskir mig og ert líka alveg hættur að snerta mig !

Annaðhvort ertu búinn að vera að halda framhjá mér eða elskar mig hreinlega ekki lengur.

Hver sem skýringin er.....þá er ég farin frá þér.

Ps. Ekki reyna að hafa upp á mér.....því þú verður bara fyrir vonbrigðum því ég og Halldór bróðir þinn

höfum ákveðið að hefja búskap saman.

Vertu blessaður.......!

Þín FYRRVERANDI eiginkona !



Sagan endar þó ekki þarna...........


Kæra fyrrverandi eiginkona.

Mig langar að byrja á að segja þér að ekkert hefur glatt mig eins mikið lengi og að fá

bréfið frá þér í dag.

Það er rétt hjá þér að við höfum jú verið gift í sjö ár en að þú skulir

halda því fram að þú hafir verið mér góð eiginkona þessi sjö ár.....er ansi

langt frá sannleikanum verð ég að segja.

Rétt skal vera rétt og til að útskýra mína hlið á málunum þá þér að segja horfi ég svona oft á fótboltann í sjónvarpinu til að losna við þurfa að hlusta á þetta stanslausa röfl í þér út af öllu og öllum ! Verst að það

virkar ekki eins vel og ég hefði viljað ! Og bara svo að þú vitir það þá tók ég

VÍST eftir því að þú hafðir farið í klippingu í síðustu viku. En málið var að mér þótti klippingin

bara svo misheppnuð og hrikalega ljót enda leistu út eins og karlmaður! Og þar sem móðir mín elskuleg kenndi mér að segja frekar ekki neitt ef maður hefði ekkert fallegt að segja.. ....ákvað ég að þegja !

Eitthvað hefur þú svo ruglað mér saman við hann Halldór bróður þegar

þú segist hafa eldað uppáhalds matinn minn því þér að segja hætti ég að borða svínakjöt fyrir rúmum sjö árum

síðan !!! Ástæðan fyrir því að ég fór að sofa þegar þú klæddist nýja sexý náttkjólnum þarna um kvöldið var einfaldlega sú að þegar ég sá verðmiðann aftan á náttkjólnum gat ekki annað en velt því fyrir mér hvort það gæti virkilega verið tilviljun að kjóllinn kostaði 3.999 kr. og að Halldór bróðir hafði fengið lánaðan hjá mér 4 þús. kall fyrr um daginn!!!!!!

En bara svo að þú vitir það þá elskaði ég þig þrátt fyrir allt og vonaðist til að við gætum reynt að

laga það sem farið hafði úrskeiðis í hjónabandinu.

Þannig að þegar ég svo uppgötvaði að ég hefði unnið í 572 milljónir í víkingalottoinu í dag ákvað ég

að segja upp vinnunni minni og koma þér á óvart með því að kaupa handa okkur tvo miða til Jamaika.

En þegar ég kom heim varst þú farin og mín beið bréfið frá þér.

Ég trúi því að það sé ástæða fyrir öllu.

Ég vona bara að þú finnir þá fyllingu í þeirri ákvörðun sem þú hefur tekið.

Lögfræðingurinn minn hefur tjáð mér að með bréfi þínu hafir þú fyrirgert rétti þínum til lottovinningsins

þannig að því miður fyrir þig er hann er alfarið minn.

Vona að þú hafir það bara gott í framtíðinni.

Já og meðan ég man...........er ekki alveg viss hvort ég sagði þér það nokkurntímann en Halldór bróðir er ekki

fæddur Halldór....heldur....Halldóra.

Vona að það komi ekki að sök.

Með ótrúlega góðri kveðju frá Jamaika....

Hinn moldríki og frjálsi FYRRVERANDI eiginmaður þinn!

Smááá svona öppdeit...

27. mars 2007 klukkan 19:17
Júbb, ég fékk nóg af þessum sudda myndum af mér þarna í hausnum og áhvað að breyta bara ALVEG um stíl - Ekkert smá ánægð með hann Baldur og hans tölvukunnáttu Svalur danke sjuuuuuuuuuuuuun Hl&aelig;jandi

En já.. ég fór ss á GusGus á laugardaginn síðasta & ég verð bara að segja það að þessir tónleikar toppuðu síðustu tónleika! VÁ VÁ & AFTUR VÁ ! Það var ALLT flott við þetta, performansinn, það getur enginn tekið það af GusGus að vera frumlegasta band Íslands! Tónlistin var PERFECT og þegar  Paul Oscar steig á svið.. vá ég fæ bara gæsahúð að hugsa um það... Það eru bara engin orð... Ég held ég viti núna hvernig það er að fara á tónleika með Idolinu sínu eða uppáhalds UPPÁHALDS hljómsveitinni sinni.
Ég þakka bara pent fyrir mig Gus Gus - Forever !

Hvernig finnst ykkur?

10. mars 2007 klukkan 19:12

Sander Kleinenberg á Íslandi ! ! !

08. febrúar 2007 klukkan 13:04

UPPSELT er í forsölu á Sander Kleinenberg 9. Febrúar. Aldrei hafa verið jafn margir miðar verið í boði í forsölu á Íslensku klúbbakvöldi og uppselt er með vikufyrirvara!!! Miðar verða seldir samdægurs 9. Febrúar á Broadway! Miðasalan byrjar kl. 20:00 og er miðaverð aðeins 3000 kr.. Mætið snemma til að forðast biðraðir því færi komust að en vildu til að kaupa miða í forsölu og má reikna með því að sleigist verði um þá miða sem eftir eru.. Nánari upplýsingar á Techno.is ásamt syrpum með Sander Kleinenberg!! Ekki missa af stærsta klúbbakvöldi Íslandssögunar!!!!

 

www.myspace.com/sanderkleinenberg
techno.is


Ok.. PANIKK!!

20. janúar 2007 klukkan 08:08
Ég sit hérna kl. 01:36 á föstudagskvöldi EIN heima hjá mér sem er ekki frásögu færandi nema fyrir hvað að ég var að lenda í því svakalegasta sem ég hef lent í á ÆVINNI! (þið sem vitið.. ég er nú búin að lenda í ýmsu) ég held ég hef aldrei verið jafn hrædd á ÆVINNI! Ok.. ég ætla að byrja á byrjuninni og útskýra af hverju ég er ein heima hjá mer á föstudagskvöldi..
  Í dag er 3 reyklausi dagurinn minn, ég er búin að reykja síðan ég var í 8. bekk (13 ára) og er 22 ára í dag..við erum að tala um 9 ár.. ég er að hætta að reykja í fyrsta skipti -ég hef alltaf sagt "Ég ætla sko ALDREI að hætta að reykja!" PLEASE ég er rétt búin að átta mig á hversu heimskulegt þetta er.. brenna peningunum og eyðileggur á þér húðina.. lungun.. og svona má lengi telja.. þannig að já.. 3. reyklausi dagurinn minn svo ekki er ég beint að höndla að fara á BOOKA SHADE Á GAUKNUM með alla reykjandi í kringum mig. WOOP WOOP! ! !

Ég var að dotta yfir Pepper Dennis á Skjá Einum áðan, vaknaði ég við e-ð skrjáfur.. ég leit upp og blasir ekki við mér þessi ÓGEÐSLEGI SVARTI KÖTTUR að éta matinn hans TarZans, ég panikkaði  (ég HATA þennan kött! hann hvæsir og hvæsir á mann) og fer að öskra á hann, nema hvað -gluggin hefur lokast á eftir kvikindinu þegar hann var á leiðinni inn- ég hélt áfram að panikka á meðan hann hleypur inn í svefnherbergi og TarZan á eftir! Ég tók teppið sem ég var með og vafði því utan um mig og fór að ath málið.. að utanverðu.. á meðan ég stóð úti í svona -10 gráðum þá sat þessi helvítis köttur uppá skápnum mínum og horfði á mig eins og hann horfði bara beint í gegnum mig.. honum var SKÍT sama... hvað um það.. þarsem ég bý í bílskúr að þá mun gluggi sem snýr að inngangnum mínum vera baðherbergisglugginn hjá einhverjum.. það var galopinn glugginn og ég heyri e-ð fólk tala á meðan ég er að öskra á köttinn og blóta honum í sand og ösku og berja á gluggann... áður en ég vissi af var fólkið bara byrjað að  RÍÐA INNÁ KLÓSTI Á MEÐAN ÉG VAR Í KRÍSU  DAUÐANS Í MÍNUS TÍU GRÁÐUM OG Á NÁTTFÖTUNUM OG ÞAU HEYRÐU ALVEG Í MÉR! JESÚS MINN! HVAÐ VARÐ UM AÐ HJÁLPA BÁGTSTÖDDUM NÁGRANNA Í NEEEEEEYYYYYYÐÐ?!?!?!

Allavegana þetta endaði með að ég er nánast kulin á höndum og fótum og get líklegast
 ekki sofnað fyrir  emjum í
einhverri gellu og kötturinn er farinn, hann hljóp framhjá mér
um útidyrahurðina og ég hljóp inn! DÍSESS KRÆST!

Þessvegna er ég að blogga um þennan hræðilega atburð því mig langar svo í sígarettu...
Ég ÞURFTI bara að koma þessu frá mér..

good night.. and goodbye.... brrrr

Prófíll

  • Nafn: Halldóra Guðlaug Gunnlaugsdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Starfsmaður 365 miðla
  • Hjúskaparstaða: Taken !
  • Um mig: Brottfluttur vestfirðingur sem er að "meikaða" í borg óttans !
  • Annað: Lifið HEIL !

Leit

Fréttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tónlist