Ég heiti Dóra & ég er fíkill
Já, það er komið á hreint - ég er fíkill - ég er fíkill í allt sem tengist tölvum! Alla helv. hvítasunnuhelgina sat ég heima að nördast! Þetta er nottlega ekki í lagi sko, mér leið alveg illa ef ég var ekki búin að tjékka á síðunum mínum í ca hálftíma... Kannist þið við þetta... svo á laugardaginn áhvað ég... "Engin tölva í ALLAVEGA 5 tíma" það gekk brösulega í klukkutíma á meðan ég las Bridget Jones´s Diary á svölunum í sólbaði, áður en ég vissi af var tölvukvikindið komið við hliðina á mér að spila ljúfa tóna af MySpace...
Ég efa það ekki að ef ég myndi fá æði fyrir Warcraft að þá er bara einfaldlega ekki aftur snúið - ég verð eins og strákurinn þarna sem gjööörsamlega snappaði á tölvuna sína af því að hann var drepinn í e-m leik.. æi þið vitið hvað ég á við... 
Ásamt nördasörfi um helgina kíkti ég á Plugg´d & Exos á Nasa á sunnudaginn- það var gjöööööðveikt! ég er með svo miklar harðsperrur að ég á erfitt með að labba upp/niður stiga, ferlegt alveg...
Ekkert meira í bili
Með von um góðann bata
*Dóra
gangi þér vel :)
jeeeeeeeeeeeeeyj !
Dóran - OUT
HÚHA ! ! !
heheheh o túrtappin í nefið...








